Breytingar á BN048688 - mhl. 9 og 12
Austurbakki 2 01.11.980.1
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 5 árum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 1013
19. mars, 2019
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN048688 þannig að fyrirkomulagi skrifstofa og snyrtinga á 3., 4., 5., og 6. hæð í L1 er breytt, flóttastigahús færast milli matshluta og í T4 er komið fyrir lyftu og hringstiga milli kjallara, 1. og 2. hæðar á lóð nr. 2 við Austurbakka.
Erindi fylgir bréf hönnuðar dags. 18. desember 2018 ásamt yfirliti yfir breytingar dags. 17. janúar 2019.
Gjald kr. 11.000
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað.
Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins.
Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu.
Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verði þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits. Áskilið samþykki Vinnueftirlits ríkisins.