Bílskúr
Hringbraut 106 01.13.921.7
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 5 árum síðan.
Málsaðilar
Katrín Ingjaldsdóttir
Byggingarfulltrúi nr. 1006
29. janúar, 2019
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að byggja nýjan steinsteyptan bílskúr, einangraðan að innan, á lóð nr. 106 við Hringbraut.
Erindinu fylgir samþykki nágranna dagsett 16. september 2018.
Stærð: 30 ferm., 91,1 rúmm.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 18. janúar 2019 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 14. janúar 2019.
Gjald kr. 11.000
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

101 Reykjavík
Landnúmer: 100782 → skrá.is
Hnitnúmer: 10020677