Breyting á aðkomu slökkviliðs
Hverfisgata 78 01.17.301.1
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 5 árum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 1009
19. febrúar, 2019
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um breytingu á erindi BN051285 sem felst í því að núverandi undirgöngum er lokað, verslun stækkuð sem því nemur og aðkoma hreyfihamlaðra gesta og slökkviliðs verður um undirgang að Hverfisgötu 76 í húsi á lóð nr. 78 við Hverfisgötu.
Stækkun: 25,1 ferm., 81,9 rúmm.
Þinglýst kvöð um aðkomu slökkviliðs, sorphirðu og hjólastólanotenda um Hverfisgötu 76 dags. 31.08.2018 fylgir erindi.
Einnig fylgir útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 1. febrúar 2019.
Gjald kr. 11.000
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

101 Reykjavík
Landnúmer: 101501 → skrá.is
Hnitnúmer: 10022396