Svalalokun yfir svalaganga efstu hæða
Þórðarsveigur 2-6 05.13.350.1
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 5 árum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 1006
29. janúar, 2019
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að setja svalalokun og þak yfir svalaganga, annars vegar á 4. hæð húsa 2 og 4 og hinsvegar 5. hæð húss nr. 6 á lóð nr. 2-6 við Þórðarsveig.
Stækkun, B-rými: 176,6 ferm., 529,8 rúmm.
Erindi fylgir brunahönnun Eflu dags. 4. desember 2018.
Einnig fylgir útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 4. janúar 2019 ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 4. janúar 2019.
Gjald kr. 11.000
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

113 Reykjavík
Landnúmer: 190672 → skrá.is
Hnitnúmer: 10077646