Stækka og breyta framleiðslueldhúsi og stækkun húss
Brúnavegur 13 01.35.100.1
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 5 árum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 1003
8. janúar, 2019
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að byggja viðbyggingu, eina hæð og kjallara, stækka þannig framleiðslueldhús og koma fyrir loftræsibúnaði í kjallara viðbyggingar á norðurhlið A-álmu Hrafnistu á lóð nr. 13 við Brúnaveg.
Viðbygging: 271,9 ferm., 953,7 rúmm.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 14. desember 2018 fylgir erindi.
Gjald kr. 11.000
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst eigi síðar en við fokheldi. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

Landnúmer: 104174 → skrá.is
Hnitnúmer: 10005059