Ármúli 13a - br. skrifst. og iðnaðarhúsn. í hótel /veitingastað
Suðurlandsbraut 16 01.26.310.2
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 5 árum síðan.
Málsaðilar
Byggingarfulltrúi nr. 1007
5. febrúar, 2019
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að breyta núverandi skrifstofu- og iðnaðarhúsnæði í gististað í flokki IV - tegund a, hótel fyrir 144 gesti og veitingastað í flokki II - tegund c, skyndibitastað ásamt því að gera nýjan flóttaútgang úr stigahúsi í austurenda í húsi á lóð nr. 13a við Ármúla.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 14. desember 2018 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 14. desember 2018.
Gjald kr. 11.000
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Skilyrt er að yfirlýsingu um sameiningu eigna verði þinglýst fyrir útgáfu byggingarleyfis.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits. Áskilið samþykki Vinnueftirlits ríkisins.