Búseti - fjölbýlishús
Árskógar 5-7 04.91.200.1
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 árum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 1021
21. maí, 2019
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að byggja tvö steinsteypt fjögurra hæða fjölbýlishús, með samtals 72 íbúðum, auk sameiginlegs bílakjallara fyrir 34 stæði og 38 stæðum á lóðinni, samtals eru 72 bílastæði á lóð nr. 5-7 við Árskóga.
Stærðir:
A-rými : 5.945,2 ferm., 18.297,7 rúmm.
B-rými : 2.044,9 ferm., 2.730,9 rúmm.
Með erindinu fylgir; Greinagerð I vegna hljóðvistar frá Trivium ráðgjöf, dags. nóvember 2018 og varmataps útreikningar dags. 9. nóvember 2018.
Gjald kr. 11.000
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað.
Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins.
Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

109 Reykjavík
Landnúmer: 224213 → skrá.is
Hnitnúmer: 10132824