Aukning á A rýmum BN054285 og breytt skipulag
Hraunbær 103A 04.33.110.3
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 5 árum síðan.
Málsaðilar
Byggingarfulltrúi nr. 1008
12. febrúar, 2019
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN054285 þannig að byggt verður við suðurgafl á 6. til 9. hæð og austurgafl á 8. og 9. hæð, endaíbúðir þessara hæða stækka, að auki er innra skipulagi íbúða og geymslum breytt í húsi á lóð nr. 103a við Hraunbæ.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 30. nóvember 2018 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 30. nóvember 2018.
Stækkun: 270,0 ferm.,758,88 rúmm.
Gjald kr. 11.000
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað.
Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins. Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

110 Reykjavík
Landnúmer: 225258 → skrá.is
Hnitnúmer: 10119787