Leiðrétting á bókun
Austurstræti 12 01.14.040.7
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 5 árum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 997
13. nóvember, 2018
Samþykkt
Fyrirspurn
Á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa þann 6. nóvember 2018 var samþykkt erindi BN055274 um að breyta innra fyrirkomulagi á 4. hæð og koma þar fyrir fleiri snyrtingum ásamt því að breyta íbúð á 5. hæð í skrifstofu og lokaða félagsaðstöðu, fjarlægja núverandi milliloft þakrýmis, einangra þak og styrkja burðarvirki þess og opna á ný yfir í nr. 10a í húsi á lóð nr. 12 við Austurstræti.
Við samþykkt málsins láðist að setja eftirfarandi bókun:
Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt.
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Þinglýsa skal kvöð um opnun yfir lóðarmörk, yfir á lóð nr. 10A við Austurstræti fyrir útgáfu byggingarleyfis.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

101 Reykjavík
Landnúmer: 100850 → skrá.is
Hnitnúmer: 10007458