Breytingar á innra skipulagi
Kleifarvegur 12 01.38.040.2
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 5 árum síðan.
Málsaðilar
Arnþór Guðlaugsson
Byggingarfulltrúi nr. 1008
12. febrúar, 2019
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi fyrir áður gerðum breytingum á innra skipulagi og eignamörkum milli íbúða í tvíbýlishúsi á lóð nr. 12 við Kleifarveg.
Erindi fylgir samþykki meðeigenda áritað á teikningu dags. 01.10.2018 ásamt staðfestingu skoðunarmanns byggingarfulltrúa dags. 7. febrúar 2019.
Gjald kr. 11.000
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Það athugist að um er að ræða samþykkt á áður gerðri framkvæmd sem gerð var án byggingarleyfis. Óvissa kann því að vera um uppbyggingu og útfærslu framkvæmdar. Hvorki er skráð verktrygging á verkið né ábyrðaraðilar.
Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst til þess að samþykktin öðlist gildi.

104 Reykjavík
Landnúmer: 104762 → skrá.is
Hnitnúmer: 10013182