Viðbygging suðurhlið
Hlíðargerði 26 01.81.540.7
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 5 árum síðan.
Málsaðilar
Svanur Baldursson
Byggingarfulltrúi nr. 1000
4. desember, 2018
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að byggja viðbyggingu með anddyri við aðalinngang á suðurhlið einbýlishússins á lóð nr. 26 við Hlíðargerði.
Lögð er fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 18. september 2015.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 30. nóvember 2018 fylgir erindi. Erindi var grenndarkynnt fyrir hagsmunaaðilum að Hágerði 11, 21 og 31 og Hlíðagerði 26 og Melgerði 31 frá 29. október 2018 til og með 26. nóvember 2018. Engar athugasemdir bárust.
Stækkun: 6,8 ferm., 21,2 rúmm.
Gjald kr. 11.000
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

108 Reykjavík
Landnúmer: 108015 → skrá.is
Hnitnúmer: 10018865