Stækkun kjallara
Sogavegur 42 01.81.310.4
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 5 árum síðan.
Málsaðilar
Ingi Eiríksson
Hrönn Jónsdóttir
Byggingarfulltrúi nr. 1013
19. mars, 2019
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að stækka kjallara með því að grafa út, gera geymslu, sjónvarpsherbergi og þvottaherbergi og koma fyrir stiga niður í kjallara í húsi á lóð nr. 42 við Sogaveg.
Umsögn burðarvirkishönnuðar dags 18. sept. 2018 og samþykki eigenda á Sogavegi 40 fylgir erindi.
Einnig fylgir útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 19. október 2018 ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 19. október 2018.
Stækkun: 59,1 ferm., 154,3 rúmm.
Gjald kr. 11.000
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

108 Reykjavík
Landnúmer: 107876 → skrá.is
Hnitnúmer: 10018605