Sex söluhús úr timbri og eitt með snyrtingum
Ægisgarður 5 01.11.610.1
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 árum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 1020
14. maí, 2019
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að byggja sex söluhús úr timbri á steyptum sökklum ásamt húsi með almenningssnyrtingum og inntaksrými lagna á lóð nr. 5 við Ægisgarð.
Stærðir:
Mhl. 02, 5b: 52,7 ferm., 216,5 rúmm.
Mhl. 03, 5c: 93,9 ferm., 397,7 rúmm., B-rými: 8,5 ferm.
Mhl. 04, 5d: 88,0 ferm., 381,0 rúmm., B-rými: 8,5 ferm.
Mhl. 05, 5e: 93,9 ferm., 394,5 rúmm., B-rými: 8,5 ferm.
Mhl. 06, 5f: 57,5 ferm., 230,0 rúmm., B-rými: 8,5 ferm.
Mhl. 07, 5g: 52,7 ferm., 216,5 rúmm., B-rými: 8,5 ferm.
Mhl. 08, WC og inntök: 47,2 ferm., 209,8 rúmm., B-rými: 8,5 ferm.
Alls : 485,9 ferm., 2.046,0 rúmm., B-rými Samtals: 59,5 ferm.
Samtals A- og B-rými: 545,5 ferm.
Erindi fylgir minnisblað Mannvits um brunavarnir dags. 26. september 2018, greinargerð Verkís um hljóðvist dags. 25. september 2018, útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 2. nóvember 2018 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 2. nóvember 2018, greinargerð Verkís um lýsingu dags. 1. apríl 2019, hæða- og mæliblað mótt. 14. maí 2019.
Gjald: kr. 11.000 + 11.200
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað.
Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins.
Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.