Breyting inni og viðbygging á vesturhlið + 3. hæð
Kirkjustétt 2-6 04.13.220.1
Síðast Frestað á fundi fyrir 5 árum síðan.
Málsaðilar
Byggingarfulltrúi nr. 997
13. nóvember, 2018
Frestað
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að breyta innra fyrirkomulagi og notkun rýma í matshluta 02, einnig er sótt um leyfi til að byggja 3. hæð ofan á núverandi hús sem og viðbyggingu við vesturhlið húss á lóð nr. 2-6 við Kirkjustétt.
Stækkun: 772,0 ferm., 2.547,0 rúmm.
Erindinu fylgir samþykki meðlóðarhafa á breytingu á deiliskipulagi, dagsett 28. mars. 2017.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 9. nóvember 2018 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 9. nóvember 2018.
Gjald kr. 11.000
Svar

Frestað.
Með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 9. nóvember 2018 og vísað til athugasemda.

113 Reykjavík
Landnúmer: 188525 → skrá.is
Hnitnúmer: 10092628