Stækka, innrétta keilusal o.fl.
Skúlagata 28 01.15.430.4
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 5 árum síðan.
Málsaðilar
Byggingarfulltrúi nr. 1003
8. janúar, 2019
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að stækka 1. hæð fyrir aftan hús og byggja kjallara þar undir, innrétta keilusal og bar, einnig að byggja nýjar útitröppur og skábraut og síkka glugga á norðurhlið 1. hæðar húss á lóð nr. 28 við Skúlagötu.
Stækkun: 806,1 ferm., 2.745,5 rúmm.
Eftir stækkun, A-rými: 3.658,7 ferm., 12.880,7 rúmm.
B-rými: 40,6 ferm., 134 rúmm.
Gjald kr. 11.000
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Þinglýsa skal yfirlýsingu um að skábraut verði fjarlægð á kostnað eiganda krefjist Reykjavíkurborg þess.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

101 Reykjavík
Landnúmer: 101119 → skrá.is
Hnitnúmer: 10017755