Viðbygging bak við hús
Ægisíða 44 01.55.500.6
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 5 árum síðan.
Málsaðilar
Magnús Geir Þórðarson
Ingibjörg Ösp Stefánsdóttir
Byggingarfulltrúi nr. 1003
8. janúar, 2019
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að byggja steinsteypta viðbyggingu norðan við hús og til að breyta innra skipulagi í einbýlishúsi á lóð nr. 44 við Ægisíðu.
Stækkun: 73,2 ferm., 250,3 rúmm.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 11. nóvember 2018 fylgir erindi.
Erindi var grenndarkynnt fyrir hagsmunaaðilum að Ægisíðu 46, Starhaga 16 og Lynghaga 15 og 17 frá 21. september 2018 til og með 19. október 2018. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Hjalti Kristjánsson f.h. TD á Íslandi dags. 17. október 2018.
Gjald kr. 11.000
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

107 Reykjavík
Landnúmer: 106621 → skrá.is
Hnitnúmer: 10016346