Stækka 4 hæð
Brautarholt 4-4A 01.24.120.3
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 5 árum síðan.
Málsaðilar
Einar Guðlaugsson
Byggingarfulltrúi nr. 1001
11. desember, 2018
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að endurskipuleggja 2. og 3. hæð, stækka 4. hæð yfir svalir til suðurs og innrétta þar 11 gistirými sem verða viðbót við núverandi gististað í flokki II, teg. b fyrir samtals 66 gesti í 32 herbergjum í húsi nr. 4 á lóð nr. 4-4A við Brautarholt.
Erindi fylgir samþykki meðlóðarhafa dags. 17. september 2018.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 5. október 2018 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 5. október 2018.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 7. desember 2018 fylgir erindi. Erindi var grenndarkynnt fyrir hagsmunaaðilum að Brautaholti 2 og 6 og Skipholti 1, 3 og 5 frá 2. nóvember 2018 til og með 30. nóvember 2018. Engar athugasemdir bárust.
Stækkun: 46,2 ferm., 82,2 rúmm.
Gjald kr. 11.000
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.