Stækka íbúðarhús nr.5
Láland 5 01.87.400.1
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 5 árum síðan.
Málsaðilar
Svanhvít Birna Hrólfsdóttir
Byggingarfulltrúi nr. 991
2. október, 2018
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að byggja nýja bílgeymslu framan við núverandi bílgeymslu, innrétta svefnherbergi í þeirri eldri, lyfta hluta þaks, koma fyrir ofanljósi, og koma fyrir tveimur nýjum bílastæðum sunnan einbýlishúss nr. 5 á lóð nr. 1-7 við Láland.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 7. september 2018 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 7. september 2018. Einnig samþykki eigenda Lálands 1, 3 og 7 dags. 13. september 2018.
Stækkun: 57,5 ferm., 228,3 rúmm.
Eftir stækkun, A-rými: 306,8 ferm., 1.042,6 rúmm.
B-rými: 5,8 ferm.
Gjald kr. 11.000
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

108 Reykjavík
Landnúmer: 108831 → skrá.is
Hnitnúmer: 10014897