Skúlagata 26, 17 hæða hótel 195 herbergi og 3 - 6 hæð fjölbýlishús með 31 íbúðum
Skúlagata 26 (01.154.302)
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 4 árum síðan.
Málsaðilar
Skipulags- og samgönguráð nr. 31
13. mars, 2019
Annað
Fyrirspurn
Lagt fram til kynningar erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 8. janúar 2018 þar sem sótt er um leyfi til að byggja 17 hæða hótel fl. V byggingu með 195 herbergjum og 3-6 hæða fjölbýlishús með 31 íbúð á lóð nr. 26 við Skúlagötu. Einnig er lögð er fram greinargerð Fagrýnihóps byggingarfulltrúa  ódagsett vegna Skúlagötu 26. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 31. ágúst 2018 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 31. ágúst 2018. Einnig fylgir greinagerð um hljóðhönnun ódagsett og umsögn brunahönnuðar dags. 11. desember 2018. Stærðir: x ferm., x rúmm. Gjald kr. 11.000
Svar

Kl. 9:34 taka Kristín Soffía Jónsdóttir og áheyrnarfulltrúinn Daníel Örn Arnarsson sæti á fundinum.