Bílskúr og breyta innra fyrirkomulagi
Egilsgata 14 01.19.500.3
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 3 árum síðan.
Málsaðilar
Byggingarfulltrúi nr. 1067
12. maí, 2020
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að breyta lítillega fyrirkomulagi í kjallara og breyta ósamþykktri íbúð í samþykkta íbúð, breyta innra skipulagi 1. og 2. hæðar og byggja einfaldan steinsteyptan bílskúr vestan megin við hús á lóð nr. 14 við Egilsgötu.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 31. ágúst 2018 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 29. ágúst 2018.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 7. desember 2018 fylgir erindi, ásamt bréfi skipulagsfulltrúa dags. 10. desember 2019. Erindi var grenndarkynnt fyrir hagsmunaaðilum að Egilsgötu 12 og 16 Leifsgötu 7 og 9 frá 2. nóvember 2018 til og með 30. nóvember 2018. Engar athugasemdir bárust.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 19. desember 2019 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 18. desember 2019 fylgir erindi. Einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 20. desember 2019.
Stærð: 34,8 ferm., 112,1rúmm.
Gjald kr. 11.000
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Lóðamarkabreyting tekur gildi þegar þinglýst hefur verið yfirlýsingu um breytt lóðarmörk.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verði þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

101 Reykjavík
Landnúmer: 102561 → skrá.is
Hnitnúmer: 10008616