Breyta innra skipulagi
Köllunarklettsvegur 4 01.32.970.2
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 5 árum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 1011
5. mars, 2019
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi á 2. hæð, rými 0201 sem skipt verður í 15 vinnustofur fyrir listamenn, koma fyrir svölum á vesturhlið og fellistiga á suðurhlið ásamt því að koma fyrir opnanlegum þakgluggum og skipta rými 0109 á 1. hæð í tvennt í húsi á lóð nr. 4 við Köllunarklettsveg.
Umsögn Faxaflóahafna um breytingu á deiliskipulagi og samþykki meðeigenda dags. 15. október 2018 fylgja erindi.
Einnig fylgir útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 9. nóvember 2018 og útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 18. janúar 2019 ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 18. janúar 2019.
Gjald kr. 11.000 +11.200
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst eigi síðar en við fokheldi.

Landnúmer: 180644 → skrá.is
Hnitnúmer: 10066736