Breyting á BN053845, fjölga eignum
Eggertsgata 2-34 01.63.4-9.9
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 5 árum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 986
28. ágúst, 2018
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN053096 þannig að eignum er fjölgað úr fjórum í sex, hurð sett í staðinn fyrir glugga, snyrtingum er breytt og eldhús endurhannað í leikskóladeild í húsum nr. 30, 32 og 34 á lóð nr. 2-34 við Eggertsgötu.
Bréf hönnuðar sem lýsir breytingum dags. 10. júlí 2018 fylgir erindi.
Gjald kr. 11.000
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.
Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst eigi síðar en við fokheldi.

102 Reykjavík
Landnúmer: 106682 → skrá.is
Hnitnúmer: 10059806