Veitingastaður flokkur II
Snorrabraut 27-29 01.24.001.1
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 5 árum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 977
12. júní, 2018
Vísað til skipulagsfulltrúa
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að innrétta veitingastað í fl. II tegund veitingahús fyrir 80 gesti í rými 0102 og 0202, koma fyrir gasgeymslu við norðurgafl, koma fyrir borðum út á gangstétt, breyta opnun á inngangshurð og koma fyrir útloftun frá eldhúsi á vesturhlið húss á lóð nr. 29 við Snorrabraut.
Erindi fylgir bréf frá hönnuði dags. 28. maí 2018, húsaleigusamningur dags. 27. apríl 2018, viðauki við húsaleigusamning dags. 25. apríl 2018 og samþykki eigenda dags. 14. apríl, 4. og 28. maí 2018.
Gjald kr. 11.000
Svar

Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa og skrifstofu reksturs- og umhirðu borgarlands.

105 Reykjavík
Landnúmer: 102978 → skrá.is
Hnitnúmer: 10018552