Gustlokun svala og gustlokun á þaksvölum
Stóragerði 42 01.80.310.1
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 5 árum síðan.
Málsaðilar
Valdimar Harðarson
Byggingarfulltrúi nr. 988
11. september, 2018
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að gera hurðir út í garð í íbúðum á 1. hæð, gustlokun á svölum á annarri og þriðju hæð ásamt gustlokun með þaki að hluta á svölum fjórðu hæðar fjölbýlishúss á lóð nr. 42 við Stóragerði.
Samþykki frá 12 íbúðum af 14 frá fundi húsfélags dags. 11. apríl 2018 og bréf frá hönnuði dags. 7. maí 2018 fylgir erindi.
Einnig fylgir útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 25. maí 2018.
Ný B rými: 27,6 ferm og 73,1 rúmm.,
Gustlokanir: 469,8 rúmm.
Gjald kr. 11.000
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

108 Reykjavík
Landnúmer: 107721 → skrá.is
Hnitnúmer: 10001527