Svalir og tröppur
Tjarnargata 16 01.14.130.3
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 5 árum síðan.
Málsaðilar
Ragnar Kjartansson
Byggingarfulltrúi nr. 977
12. júní, 2018
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi fyrir nýjum svölum út frá eldhúsi 1. hæðar og tröppum frá þeim niður í garð á lóð nr. 16 við Tjarnargötu.
Samþykki meðeigenda dags. 26. febrúar 2018, bréf hönnuðar um beiðni um undanþágu frá BR 112/2012 dags. 7. mars 2018 og bréf hönnuðar um beiðni um undanþágu frá 4. júní fylgja erindinu.
Einnig umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 27. febrúar 2018 og umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 16. apríl 2018.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 1. júní 2018 fylgir erindinu. Erindi var grenndarkynnt fyrir hagsmunaaðilum að Tjarnargötu nr. 14 og 18 frá 30. apríl 2018 til og með 28. maí 2018. Engar athugasemdir bárust.
Gjald kr. 11.000
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa

101 Reykjavík
Landnúmer: 100907 → skrá.is
Hnitnúmer: 10023582