31 - Viðbygging og kjallarabreytingar
Frostaskjól 25-31 01.51.510.3
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 6 árum síðan.
Málsaðilar
Linda Rós Pálsdóttir
Dagur Gunnarsson
Byggingarfulltrúi nr. 963
27. febrúar, 2018
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að byggja einnar hæðar viðbyggingu við suðurhlið, breyta innra fyrirkomulagi í kjallara og gera þar nýjan glugga í húsi nr. 31 á lóð nr. 25-31 við Frostaskjól.
Stækkun 17,3 ferm., 49,4 rúmm.
Samþykki meðlóðarhafa dags. febrúar 2018 fylgir erindi.
Gjald kr. 11.000
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

107 Reykjavík
Landnúmer: 105817 → skrá.is
Hnitnúmer: 10010821