BN052646 - Breyting inni, klæðning, stoðveggur o.fl.
Hestháls 6-8 04.32.310.1
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 6 árum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 962
20. febrúar, 2018
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN052646 þannig að innra fyrirkomulagi er breytt, breyta klæðningu, stoðveggjum og girðingum komið fyrir á lóðarmörkum á lóð nr.6-8 við Hestháls.
Samþykki eiganda aðliggjandi lóðar dags. 7.02.2018 fylgir.
Gjald kr. 11.000
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Áður en framkvæmd hefst skal hafa samráð við Veitur ohf. vegna mögulegra lagna við lóðamörk.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.