Viðbygging - endurbygging
Hafnarstræti 18 01.14.030.3
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 5 árum síðan.
Málsaðilar
Byggingarfulltrúi nr. 974
22. maí, 2018
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að lyfta húsi um 90cm, byggja kjallara undir allt húsið og tveggja hæða viðbyggingu á bakhlið, innrétta verslun og þjónustu í kjallara og á 1. hæð og skrifstofur á 2. hæð ásamt því að endurgera ytra byrði til samræmis við útlit þess frá 1924, hús á lóð nr. 18 við Hafnarstræti.
Erindi fylgja umsagnir Minjastofnunar Íslands dags. 4. janúar 2017, 20. september 2017, 29. nóvember 2017, 15. febrúar 2018.
Einnig útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 18. maí 2018 ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 18. maí 2018.
Stækkun: 339,2 ferm., 1.282,3 rúmm.
Gjald kr. 11.000
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað.
Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins.
Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

101 Reykjavík
Landnúmer: 100837 → skrá.is
Hnitnúmer: 10012168