Gistiheimili - svalir
Njarðargata 45 01.18.660.5
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 árum síðan.
Málsaðilar
Byggingarfulltrúi nr. 1023
4. júní, 2019
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til gera gististað í flokki ll - tegund b fyrir 10 manns ásamt því að gera svalir á bakhlið á 2. og 3. hæð og bæta brunavarnir í húsi á lóð nr. 45 við Njarðargötu.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 2. mars 2018 fylgir erindinu, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 2. mars 2018 og útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 20. apríl 2018.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 31. maí 2019 fylgir erindi. Erindi var grenndarkynnt fyrir hagsmunaaðilum að Njarðargötu 43 og 47, Haðarstíg 16, 18, 20 og 22 frá 29. apríl 2019 til og með 27. maí 2019. Engar athugasemdir bárust.
Gjald kr. 11.000
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits. Áskilið samþykki Vinnueftirlits ríkisins.