Móttökudiskar - skilti - Breyting á BN050404
Tryggvagata 14 01.13.210.3
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 6 árum síðan.
Málsaðilar
Byggingarfulltrúi nr. 961
13. febrúar, 2018
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um breytingu á erindi BN050404 sem felst í því að setja upp tvo móttökudiska á þaki og skilti á hliðar húss auk minniháttar breytinga á hurðum innandyra í húsi á lóð nr. 14 við Tryggvagötu.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 9. febrúar 2018 fylgir erindinu, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 6. febrúar 2018.
Gjald kr. 11.000
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað.
Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins.
Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

101 Reykjavík
Landnúmer: 100212 → skrá.is
Hnitnúmer: 10023712