Ofanábygging og ris
Mímisvegur 4 01.19.610.9
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 6 árum síðan.
Málsaðilar
Rögnvaldur Guðmundsson
Elín Valdís Þorsteinsdóttir
Byggingarfulltrúi nr. 962
20. febrúar, 2018
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að byggja 3. hæð og ris, innrétta nýja íbúð í risi, byggja svalir á suðurgafli 1. 2. 3. hæðar, gera nýjan inngang og innrétta íbúðarherbergi í kjallara tvíbýlishúss á lóð nr. 4 við Mímisveg.
Erindi var áður samþykkt 15. desember 2015 sem erindi BN049682 en var fellt úr gildi 1. desember sl.
Erindi var grenndarkynnt fyrir hagsmunaaðilum að Mímisveg 2, 2a, 6 og 8, Fjölnisvegi 15, Sjafnargötu 14, Barónsstíg 78 og 80 og Freyjugötu 42, 44 og 46 frá 22. desember 2017 til og með 24. janúar 2018.
Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Kristín Andrea Þórðardóttir dags. 23. janúar 2017, Hulda Helgadóttir dags. 23. janúar 2018 og Fjeldsted og Blöndal lögmannsstofa slf. f.h. íbúa og eigenda Freyjugötu 42 og 44 og Mímisveg 8 dags. 24. janúar 2018 ásamt fylgiskjölum. Einnig er lagt fram bréf eigenda hluta húseignarinnar að Barónsstíg 78 dags. 10. janúar 2018 þar sem ekki eru gerðar athugasemdir við erindið. Vísað er til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.
Stækkun: 100,8 ferm., 241,8 rúmm.
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst eigi síðar en við fokheldi. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

101 Reykjavík
Landnúmer: 102650 → skrá.is
Hnitnúmer: 10022499