Flóttaleið á norðurhlið
Ármúli 19 01.26.410.4
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 6 árum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 962
20. febrúar, 2018
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að breyta og bæta flóttaleiðir í byggingunni og koma fyrir flóttastiga frá millilofti niður á 1. hæð og fellistiga á norðurhlið frá 1. hæð niður á gangstétt á lóð nr. 19 við Ármúla.
Útskrift úr gerðabók embættis afgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 12. janúar 2018 fylgir erindinu, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 12. janúar 2018.
Gjald kr. 11.000
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

108 Reykjavík
Landnúmer: 103531 → skrá.is
Hnitnúmer: 10006728