Klæðning - svalalokun
Ljósheimar 8-12 01.43.700.2
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 6 árum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 946
17. október, 2017
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að klæða með sléttum álplötum sem verða settar á stálgrind boltað í vegg og koma fyrir svalalokun á öllum svölum á húsi á lóð nr. 8 -12 við Ljósheima.
Bréf frá hönnuði dags. 28. september 2017 og fundargerð frá húsfélagi Ljósheima dags. 16. maí 2017.
Rúmmál svalaskýla er í allt : 519,6 rúmm.
Gjald kr.11.000
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

104 Reykjavík
Landnúmer: 105382 → skrá.is
Hnitnúmer: 10101704