Tvöfaldar hurðir - gamli íþróttasalurinn
Hlíðarendi 6-10 01.62.880.1
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 6 árum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 945
10. október, 2017
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að setja tvöfalda hurð á norð- vesturhlið gamla íþróttasalarins sem nota á sem flóttaleið úr salnum á lóð nr. 2-6 við Hlíðarenda.
Bréf frá hönnuði dags. 20. sept. 2017 umsögn verkfræðistofu Eflu dags. 22 sept. Umsögn brunahönnuðar dags. Sept. 2017 fylgir erindinu.
Gjald kr. 11.000
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.