Brunastigi - breyting inni
Sóleyjargata 31 01.19.741.4
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 6 árum síðan.
Málsaðilar
Byggingarfulltrúi nr. 959
30. janúar, 2018
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi í kjallara og á 1. hæð, koma fyrir brunastiga á bakhlið frá 2. hæð og björgunarpalli á þaki og innrétta gististað í flokki II á lóð nr. 31 við Sóleyjargötu.
Lagðar eru fram umsagnir skipulagsfulltrúa dags. 19. maí 2017 og 25. ágúst 2014.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 13. október 2017 fylgir erindinu, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 13. október 2017.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 26. janúar 2018 fylgir erindinu. Erindið var grenndarkynnt fyrir hagsmunaaðilum að Smáragötu 6 og 8 og Sóleyjargötu 33 frá 22. desember 2017 til og með 24. janúar 2018. Engar athugasemdir bárust.
Gjald kr. 11.000
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

101 Reykjavík
Landnúmer: 102749 → skrá.is
Hnitnúmer: 10019345