Innanhússbreytingar
Tryggvagata 22 01.14.000.4
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 6 árum síðan.
Málsaðilar
Starri Hauksson
Byggingarfulltrúi nr. 946
17. október, 2017
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að breyta innra fyrirkomulagi, innrétta matsölustað í flokki l - tegund c (auk veitingastaðar í flokki lll - tegund b sem fyrir er), færa til flóttadyr út á svalir og koma fyrir útblástursröri frá háfi í húsi á lóð nr. 22 við Tryggvagötu.
Samþykki eiganda er ritað á teikningu. Ódags. samþykki eiganda aðliggjandi lóðar fyrir gasgeymslu fylgir erindi.
Gjald kr. 11.000
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

101 Reykjavík
Landnúmer: 100816 → skrá.is
Hnitnúmer: 10023717