Breyting kjallara - Rúmfatalagerinn - ofl.
Bíldshöfði 20 04.06.510.1
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 6 árum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 944
3. október, 2017
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi, gera flóttadyr á vesturhlið og uppfæra brunavarnir í kjallara húss á lóð nr. 20 við Bíldshöfða.
Erindi fylgir brunahönnun frá Mannvit dags. 19. september 2017.
Gjald kr. 11.000
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki Vinnueftirlits ríkisins.

110 Reykjavík
Landnúmer: 110673 → skrá.is
Hnitnúmer: 10008079