Breyting inni - Br. á stofni BN048060
Hafnarstræti 17 01.11.850.2
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 6 árum síðan.
Málsaðilar
Byggingarfulltrúi nr. 934
25. júlí, 2017
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um breytingu á erindi BN048060 sem felst í að kalt ker í spa er tekið út, móttaka færð og lokað milli Hafnarstrætis 17 og 19 ásamt því að tengingu milli herbergja á 2. hæð timburhúss er breytt í húsi á lóð nr. 17 við Hafnarstræti.
Gjald kr. 11.000
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða. Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað.
Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins. Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits. Áskilið samþykki Vinnueftirlits ríkisins. Skilyrt er að fyrir útgáfu byggingarleyfis verði búið að sækja um og samþykkja byggingaráform á lóðinni nr. 19 við Hafnarstræti. Vegna sameignlegra aðkomu- og flóttaleiða, annarra öryggisatriða og aðgengis að tækni- og lagnarýmum skal fyrir útgáfu byggingarleyfis þinglýst yfirlýsingu þess efnis að eignarhald á lóðunum nr. 17 við Hafnarstræti og á lóðinni nr. 19 við Hafnarstræti verði ávallt allt á einni hendi. Skal yfirlýsingunni þinglýst á báðar framangreindar lóðir.