Bílskúr
Drápuhlíð 36 01.71.300.6
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 5 árum síðan.
Málsaðilar
Helga Benediktsdóttir
Byggingarfulltrúi nr. 981
10. júlí, 2018
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að byggja staðsteyptan bílskúr við austurhlið lóðar að lóðarmörkum nr. 38 á lóð fjölbýlishúss nr. 36 við Drápuhlíð.
Bréf frá hönnuði dags. 9. maí 2017, Eignaskiptayfirlýsing dags. 20 nóv. 2011 og bréf hönnuðar dags. 31. maí með samþykki sumra dags. 26. maí 2017 fylgir.
Útskrift úr gerðabók umhverfis- og skipulagsráðs frá 6. september 2017 fylgir erindinu, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 1. september 2017.
Einnig bréf frá Local lögmönnum dags. 14. desember 2017 og svarbréf skrifstofu sviðsstjóra dags. 26. apríl 2018.
Erindi var grenndarkynnt fyrir hagsmunaaðilum að Drápuhlíð 34,35,36,37,38 og Blönduhlið 25 og 27 frá 30. júní 2017 til og með 28. júlí 2017. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Hildur Sólveig Pétursdóttir hrl. f.h. Ásgerðar Vigfúsdóttur, dags. 17. júlí 2017 og Steinar Jens Friðgeirsson, dags. 28. júlí 2017.
Stærð bílskúr: 26,3 ferm., 80,1 rúmm.
Gjald kr. 11.000
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst eigi síðar en við fokheldi. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

105 Reykjavík
Landnúmer: 107217 → skrá.is
Hnitnúmer: 10009252