Endurnýjun á BN044991
Sörlaskjól 78 01.53.101.9
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 5 árum síðan.
Málsaðilar
Snorri Pétur Eggertsson
Byggingarfulltrúi nr. 1006
29. janúar, 2019
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að byggja kvist á norðurhlið, svalir á suðurhlið 1. hæðar, verönd og hurð út í garð úr kjallara og til að byggja hjólaskýli við norðurhlið bílskúrs við parhús á lóð nr. 78 við Sörlaskjól.
Sams konar erindi, BN044991, var grenndarkynnt árið 2013.
Erindi fylgir samþykki meðlóðarhafa dags. 24. maí 2017.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 25. janúar 2019 fylgir erindi. Erindi var grenndarkynnt fyrir hagsmunaaðilum að Nesvegi 57 og 59 og Sörlaskjóli 72, 74, 76, 80 og 82 frá 21. desember 2018 til og með 21. janúar 2019. Engar athugasemdir bárust.
Kvistur: 3,2 rúmm.
Hjólageymsla: 6 ferm., 13,9 rúmm.
Stækkun: 6 ferm., 17,1 rúmm.
Gjald kr. 11.000
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

107 Reykjavík
Landnúmer: 106134 → skrá.is
Hnitnúmer: 10022874