Viðbygging og breyting í gististað
Bergstaðastræti 33B 01.18.441.0
Síðast Frestað á fundi fyrir 4 árum síðan.
Málsaðilar
Byggingarfulltrúi nr. 1049
17. desember, 2019
Frestað
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að breyta í gististað í flokki II, teg. g og fyrir áður gerðum breytingum, viðbyggingu og innra skipulagi rishæðar í húsi á lóð nr. 33 B við Bergstaðastræti.
Umsögn Minjastofnun Íslands dags. 2. maí 2017, bréf hönnuðar dags. 8. júní 2018 og bréf hönnuðar dags. 3. maí 2017 fylgja erindi.
Einnig fylgir útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 12. maí 2017 ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 12. maí 2017 og útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 18. maí 2018 ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 18. maí 2018.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 21. september 2018 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 22. október 2018. Erindi var grenndarkynnt fyrir hagsmunaaðilum að Bergstaðastræti 31a, 33, 33a og 37 og Óðinsgötu 20a, 20b, 22, 22a og 24a frá 25. júlí 2018 til og með 22. ágúst 2018. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Ólína Salome Torfadóttir dags. 2. ágúst 2018 og Kristín Cecilsdóttir dags. 21. ágúst 2018.
Stækkun: 10,2 ferm., 21,1 rúmm.
Gjald kr. 11.000
Svar

Frestað.
Með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa 22. október 2018.

Landnúmer: 102070 → skrá.is
Hnitnúmer: 10007049