Stálgrindarhús
Hestháls 6-8 04.32.310.1
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 6 árum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 927
6. júní, 2017
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að reisa tveggja hæða stálgrindarhús á steyptum undirstöðum með milliplötu úr forsteyptum holplötueiningum, mhl. 02, á lóð nr. 6 - 8 við Hestháls.
Bréf frá hönnuði dags. 28. mars 2017 og bréf frá burðarvirkishönnuði dags. 28. mars. 2017.
Stærðir húss er : 2.766,0 ferm., 11.725,5 rúmm.
Gjald kr. 11.000
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Áður en framkvæmd hefst skal hafa samráð við Veitur ohf. vegna mögulegra lagna við lóðamörk. Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða. Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.