Lækka gólfkóta og hækka hús
Lambhagavegur 19 02.68.340.1
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 7 árum síðan.
Málsaðilar
Byggingarfulltrúi nr. 913
28. febrúar, 2017
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að breyta áður samþykktu erindi BN051044 þannig að gólfkóti lækkar um 20cm, húsið hækkar um 76 cm., milliloft er minnkað og komið er fyrir salernum og aðstöðu fyrir starfsfólk í gróðurhúsi á lóð nr. 19 við Lambhagaveg.
Minnkun á millipalli er: 59,3 ferm og stækkun á rúmm. vegna hækkunar á húsi er: 1.366,5 rúmm.
Gjald kr. 11.000
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 9. júní 2016 varðandi gróður, ljósmengun og hljóð.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins.
Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

113 Reykjavík
Landnúmer: 208852 → skrá.is
Hnitnúmer: 10097321