Viðbygging
Bergstaðastræti 49 01.18.600.9
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 7 árum síðan.
Málsaðilar
Páll Snæbjörnsson
Byggingarfulltrúi nr. 909
31. janúar, 2017
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að rífa viðbyggingu og svalir á suðurhlið, byggja þar nýja viðbyggingu með verönd á þaki og nýjan stiga milli kjallara og 1. hæðar einbýlishúss á lóð nr. 49 við Bergstaðastræti.
Erindi fylgir umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 10. október 2016 og umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 16. janúar 2017.
Stækkun: 20,1 ferm., 50,6 rúmm.
Gjald kr. 11.000
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

101 Reykjavík
Landnúmer: 102220 → skrá.is
Hnitnúmer: 10007064