Breyta og stækka kjallara
Skólavörðustígur 45 01.18.231.3
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 7 árum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 911
14. febrúar, 2017
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að byggja við kjallara og stækka matsal, ásamt því að fjarlægja svalir á bakhlið 1. hæðar og byggja samhangandi flóttasvalir eftir bakhliðinni og austurhlið, í húsi á lóð nr. 45 við Skólavörðustíg.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 27. janúar 2017 fylgir erindinu.
Stækkun 166,0 ferm., 448,6 rúmm.
Gjald kr. 10.100
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.