Grenndarstöð - niðurgrafin
Óðinsgata 11A
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 7 árum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 910
7. febrúar, 2017
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að setja niðurgrafna grenndarstöð fyrir endurvinnslu úrgangs á lóð nr. 11A við Óðinsgötu. Tillagan var grenndarkynnt frá 19. desember til og með 19. janúar 2017. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir/ábendingar: Stefanía Ósk Arnardóttir, dags. 19. desember 2016, Anna Þ. Guðjónsdóttir, dags. 16. janúar 2017, LEX lögmannsstofu f.h. eigenda að Freyjugötu 1, dags. 18. janúar 2017 og Birna Þórðardóttir, dags. 19. janúar 2017. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 24. janúar 2017.
Gjald kr. 10.100
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað.
Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins.
Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

101 Reykjavík
Landnúmer: 224815 → skrá.is
Hnitnúmer: 10118234