Gistiíbúðir og breytt innra fyrirkomulag
Barónsstígur 18 01.17.421.4
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 5 árum síðan.
Málsaðilar
Yngvi Finndal Heimisson
Byggingarfulltrúi nr. 979
26. júní, 2018
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi fyrir áður gerðum breytingum sem felast í því að stigi milli kjallara og 1. hæðar hefur verið fjarlægður og gerður gististaður í flokki ll - tegund g, íbúðir, í húsi á lóð nr. 18 við Barónsstíg.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 7. apríl 2017 fylgir erindinu, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 7. apríl 2017.
Samþykki meðeiganda dags. 09.04.2017 fylgir erindi ásamt umsögn Minjastofnunar dags. 19.06.2018.
Gjald kr. 10.100
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Það athugist að um er að ræða samþykkt á áður gerðri framkvæmd sem gerð var án byggingarleyfis. Óvissa kann því að vera um uppbyggingu og útfærslu framkvæmdar. Hvorki er skráð verktrygging á verkið né ábyrðaraðilar.

101 Reykjavík
Landnúmer: 101617 → skrá.is
Hnitnúmer: 10006821