Breyting inni - kröfur um burðarþol, bruna og hljóðvist
Hverfisgata 86 01.17.400.2
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 7 árum síðan.
Málsaðilar
Byggingarfulltrúi nr. 911
14. febrúar, 2017
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að byggja svalir á 3.hæð og breyta innra skipulagi íbúða, ásamt öðrum minni breytingum sem lúta að því að endurbæta burðar- og brunaþol og hljóðvist í húsi á lóð nr. 86 við Hverfisgötu.
Umsögn Minjastofnunar dags. 02.01.2017 fylgir erindi.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 19. janúar 2017 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 19. janúar 2017.
Gjald kr. 10.100
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

101 Reykjavík
Landnúmer: 101558 → skrá.is
Hnitnúmer: 10022400