Risþak bakhúsi - kvistur, breyting Gló sbr. BN051134
Laugavegur 10 01.17.130.5
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 7 árum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 910
7. febrúar, 2017
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN051134, breikka kvist á bakhlið, sameina bakhús, byggja mænisþak og koma fyrir gleranddyri framan við inngang og innrétta veitingastað í flokki II, teg. c í húsi á lóð nr. 10 við Laugaveg.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 7. október 2016 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 7. október 2016.
Einnig útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 28. október 2016, umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 5. september 2016 og bréf frá Gló og Joe & Juice dags. 27. október 2016.
Leiðrétt bókun frá fundi skipulagsfulltrúa 21. október 2016 þar sem umsögn skipulagsfulltrúa dags. 20. október 2016 var samþykkt.
Leiðrétt bókun er: Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 28. október 2016 samþykkt.
Stækkun: 1,0 ferm., 86,3 rúmm.
Gjald kr. 10.100 + 11.000
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

101 Reykjavík
Landnúmer: 101405 → skrá.is
Hnitnúmer: 10017505