Síkka glugga í stofu o.fl.
Nökkvavogur 11 01.44.111.3
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 6 árum síðan.
Málsaðilar
Jeannette Castioni
Byggingarfulltrúi nr. 930
27. júní, 2017
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að síkka glugga í stofu á suðurhlið, koma fyrir svalahurð við hlið hans ásamt stigapalli og tröppum út í garð, síkka glugga í kjallara á suður- og vesturhlið og koma fyrir nýjum glugga í kjallara á austurhlið í húsi á lóð nr. 11 við Nökkvavog.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 28. október 2016 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 28. október 2016.
Samþykki frá meðeigendum lóðar dags. 28. Júní 2016 og umsögn Burðarvirkishönnuðar dags. 21. sept. 2016 fylgir
Gjald kr. 10.100 + 10.100
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.